Önnur þjónusta
Ímynd og markaðsmál
Vörumerki eru andlit og auðkenni hvers fyrirtækis. Þau gefa ákveðna hugmynd til kynna um gildi og hlutverk fyrirtækisins og hvernig þeim er miðlað á sjónrænan hátt til viðskiptavina í gegnum nafn, lógó, slagorð og þess háttar.
Ímynd segir til um hvernig viðskiptavinir skynja vörumerki og markaðsaðgerðir fyrirtækisins. Líta má á ímynd sem einskonar loforð. Loforð um ákveðna vöru og/eða þjónustu, fyrir hvað hún stendur og hvaða þörf hún á að uppfylla. Í ímyndinni má því finna raunverulegan tilgang fyrirtækisins og hvernig honum er miðlað í gegnum markaðssamskipti til viðskiptavina, starfsfólks, hluthafa og annarra.
Við hjá Tego vitum hversu veigamiklu hlutverki hugverkaréttindi gegna í ímyndar- og markaðsuppbyggingu fyrirtækja og bjóðum upp á þjónustu og ráðgjöf á sviði ímyndar- og markaðsmála og samþættingu við stjórnun hugverkaréttinda svo hámarksarðsemi og árangri verði náð.
Markaðssérfræðingar okkar hafa áralanga reynslu af stjórnun ímyndar- og markaðsmála og geta aðstoðað þig eftir þörfum. Hafðu samband og við veitum þér nánari upplýsingar.
